Quantcast
Channel: Sykur » Lífið
Viewing all 6511 articles
Browse latest View live

Jeff Bezos, ríkasti maður heims, og eiginkonan Mackenzie eru skilin

$
0
0

Stofnandi Amazon, Jeff Bezos (54) og kona hans Mackenzie Bezos (48) til 25 ára eru skilin en þau deila fjórum börnum saman. Settu þau sameiginlega yfirlýsingu á Twitter miðvikudaginn 9. janúar.

Auglýsing

Segir í yfirlýsingunni að þau vilji tilkynna þróun í lífum þeirra: „Eins og fjölskylda og vinir vita, eftir langt tímabil ástríkrar könnunar og prufuskilnaðar höfum við ákveðið að skilja og halda áfram lífinu sem vinir.“

Auglýsing

Áfram segir: „Okkur finnst við ótrúlega heppin að hafa fundið hvort annað og eru afskaplega þakklát fyrir þau ár sem við vorum gift. Ef við hefðum vitað að við myndum skilna eftir 25 ára hjónaband myndum við samt gera allt aftur. Við höfum átt frábært líf saman meðan við vorum gift og við sjáum í framtíðinni að við verðum vinir, foreldrar og samstarfsfélagar í öllum okkar verkefnum og ævintýrum. Þrátt fyrir önnur heiti erum við samt fjölskylda og við erum góðir vinir.“

Hjónin höfðu ekki gert með sér kaupmála. Stofnandi Amazon er ríkasti maður jarðar og er metinn á 160 billjón dali.

 


Falleg ástarsaga: Fatlaður maður og ófötluð kona eru yfir sig ástfangin og vilja breyta hugsunarhætti fólks

$
0
0

Shane Burcaw (26) er með taugahrörnunarsjúkdóm og kærastan hans Hannah Aylward (25) er alheilbrigð. Þau vilja sýna heiminum að ást þeirra er ekki óvenjuleg og eru með YouTube rás þar sem þau deila lífi sínu með fólki.

Auglýsing

Fólk heldur oft að Hannah sé móðir hans eða umönnunaraðili, en hún er ástin í lífi Shanes. Vilja þau fjarlægja þann stimpil að fatlað fólk geti ekki fundið ástina en það getur verið eitthvað sem fatlaðir kunna að upplifa.

Þau vilja fræða fólk og sýna öllum að þau eigi í fullkomlega heilbrigðu sambandi þrátt fyrir erfiðleika. Þau hafa jafnvel rætt barneignir en Hannah er að klára nám og vilja þau stofna fjölskyldu.

„Markmið okkar er að normalísera fötlun og sambönd eins og okkar,” segir Shane, en parið býr í Pennsylvaniuríki, Bandaríkjunum.

„Þegar ég og Hannah erum einhversstaðar úti telja ókunnugir að við séum systkini, hún sé umönnunaraðili eða, það sem verra er, mamma mín.”

 

Auglýsing

 

Telur Shane ýmislegt varðandi fötlun vefjast fyrir fólki – s.s. sú furðulega hugmynd að fatlaðir séu óverðugir eða óhæfir um að vera í rómantískum samböndum, segir hann í viðtali við Daily Mail.

Shane fæddist með taugahrörnunarsjúkdóminn Spinal Muscular Atrophy (SMA) og hefur verið í hjólastól frá tveggja ára aldri.

Fyrir þremur árum síðan sá Hannah heimildarmynd um Shane og ákvað að hafa samband við hann. Shane skrifar bækur og hrósaði hún honum fyrir húmorinn í bókunum. Shane játar að honum fannst Hannah sæt. Þegar Hannah skrifaði Shane minntist hún aldrei á fötlun hans og hann vissi strax að hann vildi kynnast henni.

Sambandið þróaðist í sms-um og á Skype og Hannah, sem er í háskóla í Minnesota fór loks að heimsækja Shane í Pennsylvaniu.

Í þá fjóra daga sem þau voru saman kynntust þau betur og ástin blómstraði. Þau vissu bæði að þau vildu láta sambandið ganga, þrátt fyrir að búa í sitthvoru ríkinu. Þau fluttu svo inn saman í Minnesota árið 2018. Þegar þau hófu að búa, fóru þau að búa til myndbönd til að deila öllu með heiminum.

Auglýsing

YouTube rásin þeirra heitir Squirmy and Grubs, og þau nota hana til að eyða fordómum og fyrirframgefnum hugmyndum sem fólk kann að hafa milli fatlaðs manns og ófatlaðrar konu.

Þau grínast mikið og hlæja og eru alveg eins og hvert annað ástfangið par.

Rásin, sem stofnuð var fyrir hálfu ári, hefur 230.000 áskrifendur.

Hvernig væri ef stefnumótið þitt sæi samskiptin á stefnumótaappinu? – Myndband

$
0
0

Þeir sem eru í makaleit geta fundið út ýmislegt með því að fara í gegnum síma stefnumótsins. Er það samt í lagi ? Hér færðu að sjá hvernig þeir sem hyggja á stefnumót sýna tilvonandi „date-i“ samskipti sín á milli.

Auglýsing

Dæmdur fyrir að nauðga dóttur sinni á brúðkaupsnóttina

$
0
0

Dönsk kona sem lést áfengisdauða í brúðarsvítu í brúðkaupi föður síns var nauðgað af föður sínum. Faðirinn, fimmtugur Dani, og kona hans sofnuðu í brúðarsvítunni, í sama rúmi og síðar um kvöldið nauðgaði hann tvítugri dóttur sinni. Hann sendi henni skilaboð síðar og baðst afsökunar: „Mér þykir það leitt, ég hélt þú værir [nafn eiginkonunnar]. Mér þykir þetta leitt.

Auglýsing

Maðurinn hefur nú verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir ódæðið.

kolding

Gerðist atvikið í Kolding á Jótlandi. Feðginin höfðu ekki haft samband í nokkur ár, en hittust um jólin árið áður og bauð hann henni í brúðkaupið sem var í ágúst. Stúlkan varð „mjög drukkin” í veislunni og ákváðu aðrir gestir að hún kæmist ekki á gististaðinn þar sem hún ætlaði að gista, en veislan var haldin á hóteli þar sem hin nýgiftu brúðhjón ætluðu að gista. Um hálfþrú um nóttina hjálpaði faðir hennar og annar gestur henni upp og settu hana í rúmið. Einum og hálfum tíma síðar fór faðirinn að sofa við hlið dóttur sinnar ásamt nýju eiginkonunni.

Maðurinn segist ekki muna neitt hvað gerðist eftir það og neitaði ásökunum dótturinnar.

Milli 4 og 4:45 greip maðurinn dóttur sína. Hún reyndi að setjast upp og bað hann um að stoppa. Hann ýtti henni þá fast á bringuna.

Auglýsing

„Eftir þetta, á meðan hún lá á bakinu, neyddi hann hana til samræðis, þrátt fyrir að hún bæði hann margsinnis að hætta.”

Dómari komst að þeirri niðurstöðu að dóttirin hefði verið ófær um að verja sig sjálfa, vegna ölvunar.

Auglýsing

Dóttirin sagði við föður sinn að þau skyldu hætta öllum samskiptum: „Þú bauðst mér upp á eitthvað sem ég get ekki samþykkt. Ég bað þig fallega að hætta og þú gerðir það ekki. Ég öskraði, þú hættir ekki, ég sló þig, þú hélst áfram.”

 

Skilnaður ríkasta manns heims: Jeff Bezos átti hjákonu

$
0
0

Stofnandi Amazon og ríkasti maður á þessari jörð átti hjákonu, löngu áður en hann og kona hans, Mackenzie tilkynntu um skilnað í gær.

Auglýsing

Nú hafa komist í umferð textaskilaboð milli Jeff og Lauren Sanchez, sem er einnig gift – umboðsmanninum Patrick Whitesell sem vinnur í Hollywood. The Enquirer birtir þessi skilaboð.

Í einu skilaboðanna segir Jeff (54): „Ég elska þig, lifandi stelpa. Ég mun sýna þér það með líkamanum, vörunum og augunum, afar fljótlega.“

Í öðrum segir hann: „Ég vil lykta af þér, ég vil anda þér að mér. Mig langar að halda þér fast…ég vil kyssa þig á varirnar…ég elska þig, ég er ástfanginn af þér.“

Auglýsing

Tímasetning skilaboðanna sýnir að framhjáhaldið átti sér stað löngu fyrir þessa skilnaðartilkynningu. Lögfræðingur Jeffs segir að það hafi verið „öllum kunnugt“ að Jeff og Mackenzie Bezos hafi verið „skilin fyrir löngu síðan.“

Auglýsing

Þrátt fyrir það birti The Enquirer skilaboðin og 48 tímum seinna tilkynntu þau skilnaðinn. Skilaboðin voru send í vor.

Jeff, sem á fréttamiðilinn The Washington Post var á báðum áttum vegna fréttaflutnings af málinu. Honum var bent á af lögfræðingu að hann „styðji blaðamenn og ætli ekki að reyna að fá dregið úr fréttaflutningi af þessu máli.“

Angelina Jolie treystir á nágranna sinn, Natalie Portman, í biturri skilnaðardeilu

$
0
0

Eins og flestir vita er skilnaðardeila Angelinu og Brads Pitt ekki búin enn. Sem betur fer fyrir stórleikkonuna Angleinu Jolie hefur hún góða vinkonu sem hún treystir á. Leikkonan Natalie Portman er nágranni Angiear og þær hafa orðið góðar vinkonur með tímanum.

Auglýsing

„Natalie og Angie búa í sama hverfi og hafa verið, leynilega, orðið bestu vinkonur í einhvern tíma,“ segir vinur kvennanna í viðtali við Radar. „Þær hittust áður með eiginmönnunum (Brad Pitt og Benjamin Millepied) en nú þar sem Angie er á lausu er Natalie ein af þeim fáu sem hún treystir á.“

Auglýsing

Angelina hefur verið að reyna að ná sambandi við fræga vini sína eftir subbulegan skilnað við Brad. Það er erfitt fyrir Natalie að eignast vini, alvöru vini í Hollywood.

„Natalie hefur alltaf verið feimim og átt erfitt með vinskap í glysborginni – þar til núna,“ segir vinurinn.

Auglýsing

Þær vita báðar að erfitt er að eignast og viðhalda vinum á þessum stað í lífinu og reyna að treysta á hvor aðra: „Natalie getur verið köld en hún er mjög greind. Angie er einhver sem er jafnoki hennar. Það er mikið um virðingu þeirra á milli.“

Hafþór Júlíus leikur í auglýsingu fyrir skandinavíska matvælaverslun: Myndband

$
0
0

Sterkasti maður heims og vöðvatröllið Hafþór Júlíus Björnsson leikur nú í fyndnum auglýsingum sem auglýsa heimsendingu á matvörum. Hann tekur fullorðið fólk í burðarpoka (eins og við tökum litlu börnin í) og slær í gegn. Óborganlegt!

Auglýsing

Uppljóstruðu um kynið í háloftunum! – Myndband

$
0
0

Tilvonandi foreldrar fóru óvenjulega leið að tilkynna um kyn ófædds barns. Þau uppljóstruðu um kynið, 10.000 fetum ofar. Dakota og kærastan hans Carolina komu vinum sínum á óvart á meðan foreldrarnir biðu á meðan á strönd í Mexíkó. Dakota og Carolina hoppuðu út úr flugvél og höfðu með sér sprengjur sem voru annaðhvort bleikar eða bláar!

Auglýsing

 


Þungur snjór víðsvegar um Evrópu: Myndband

$
0
0

Á meðan tíðin er afar góð á Íslandi er ekki sömu sögu að segja af öðrum hlutum Evrópu, þar sem margir hafa látið lífið vegna vetrarhörkunnar. Furðulegt er að sjá strendur Grikklands þaktar snjó og snjóflóð í Austurríki olli dauða margra.

Auglýsing

Bróðir Kevin Spacey segir hann verri en Bill Cosby

$
0
0

Randy Fowler, bróðir Kevins Spacey, ber hann saman við skrímsli á borð við Harvey Weinstein og Bill Cosby sem báðir eru kynferðisafbrotamenn. Segir hann ennfremur að bróðir hans, af holdi og blóði, sé jafnvel enn skelfilegri.

Auglýsing

„Þetta snýst ekki bara um kynferðislegan unað hjá honum, heldur valdið,“ segir Randy í viðtali við Radar. „Hann er í raun verri en Weinstein og hann er verri en Bill Cosby!“

Auglýsing

Síðan Kevin var fyrst ásakaður um kynferðisárás hafa margir fleiri komið fram og sagt að hann hafi hegðað sér óviðurkvæmlega í þeirra viðurvist. Sumar ásakanirnar eru um 30 ára gamlar.

Spacey mætti fyrir rétt þann 7. janúar síðastliðinn, eins og Sykur greindi frá, en þar var hann ákærður fyrir að áreita 18 ára dreng árið 2016.

Auglýsing

„Hann er opinber persóna sem hefur nýtt sér fólk vegna áhrifanna, peninganna og þeirri staðreynd að hann sé kvikmyndastjarna,“ segir Randy (62).

 

Sviðsetti eldsvoða til að biðja kærustunnar: Myndband

$
0
0

Slökkviliðsmaðurinn Zach Steele (30) bjó til afar dramatíska senu til að biðja kærustunnar í miðju fjölskylduboði. Zach og Maddison hafa verið saman í átta ár. Til að biðja hennar sviðsetti hann eldsvoða á sínu eigin heimili með fjarstýrðum reykvélum sem staðsettar voru á háaloftinu.

Auglýsing

Zach sagði að Maddison hefði róast heilmikið þegar hann tók niður grímuna og þekkti hann!

Auglýsing

Barnfóstra skilaði barninu til móður sinnar látnu og sagði það vera sofandi

$
0
0

Barnfóstra er nú ákærð fyrir morð eftir að hún skilaði barninu látnu til móðurinnar og lét líta út sem það væri sofandi. Er hún nú ákærð fyrir morð, en réttarrannsókn leiddi í ljós að barnið, sem var tveggja mánaða drengur, hafði fengið „þungt högg.“

Auglýsing

Gerðist þetta skelfilega atvik í Wisconsinríki, Bandaríkjunum.

Marissa Tietsort (28) er ákærð fyrir morð af yfirlögðu ráði, en dauða barnsins má rekja til þungra högga oftsinnis á höfuðið. Skilaði hún svo barninu til móðurinnar hafandi þá vitneskju að drengurinn væri látinn.

Auglýsing

Barnfóstran setti látið barnið í vetrargalla og setti hann í bílstól áður en hún fór með kærastanum sínum að snæða á McDonalds. Síðar, þegar hún skilaði barninu setti hún húfu á höfuð barnsins og togaði hana niður fyrir augu. Gerðist þetta eftir klukkan 21 og fannst móðurinni eðlilegt að barnið væri sofandi.

Marissa á fimm börn sjálf og er nú með barni í Marathon sýslufangelsinu. Hún á sér sögu um ofbeldi gagnvart börnum. Barnaverndaryfirvöld fjarlægðu fjögur af fimm börnum úr hennar forsjá eftir að kærastinn tilkynnti hana.

Auglýsing

Réttarmeinafræðingurinn Robert Corliss sagði að burtséð frá höfuðhögginu hafði rófubein drengisns verið brotið og á „röngum stað“ sem benti til þess að mikið afl hafi verið notað til ofbeldisins.

 

Instagram áhrifavaldur segir að kókaín og sígarettur hafi haldið henni grannri

$
0
0

Áhrifavaldar á samfélagsmiðlum nota ekki alltaf viðurkenndar aðferðir: Ruby Matthews hefur sagt aðdáendum sínum frá þeirri aðferð sem hún notaði til að halda þyngdinni í skefjum, en hún vegur aðeins 53 kíló. Sagði hún að hún notaði kókaín og sígarettur: „Ég notaði mikið kókaín, ég meina mikið, og svo reykti ég sígarettur. Ég var mikið í óminni og notaði kók.“ sagði hún. „Og þar á milli borðaði ég tapas. Þannig, líf mitt var tapas og kókaín.“

Auglýsing

Ruby sagði við aðdáendur að það hefði verið „þokkalega auðvelt“ að fela dópneysluna og óheilbrigt samband við mat: „Margir skildu ekki hvernig ég gæti borðað mat og verið svona grönn. En ég býst við að það sé auðvelt að fela fíkn. Hvort sem það er fíkn, þunglyndi eða kvíði.“

Sagði hún að lífsstíll hennar sé ekki neitt öðruvísi frá öðrum áhrifavöldum á samfélagsmiðlum. „Ég þarf að fara varlega með hvað ég segi hérna en í fyrirsætu- og áhrifavaldabransanum elska allir slagið [af kóki].“ sagði Ruby sem er 25 ára: „Þannig heldur fólk sér í formi…þannig hélt ég mér í formi.“

Auglýsing

Nú er Ruby tveggja barna móðir og hefur bætt á sig þyngd og er hún ánægð með það.

Marissa Meshulam, næringarfræðingur, sagði við Yahoo Lifestyle að áhrifavaldar þurfi að vera varkárir, því það sem þeir gera gæti haft afar slæm áhrif á fylgjendur: „Hlutverkið sem þeir spila í lífum fylgjenda er mikið og svona lífsstílsákvarðanir eru ógnvænlegar. Fólk horfir á þetta fólk og vill líkjast því, það heldur að það geti apað eftir.“

Auglýsing

„Það getur vel verið að Ruby hafi verið grönn á þessum kúr, en við getum sennilega öll verið sammála um að það er ekkert heilbrigt við hann.“

 

Strætisvagnabílstjóri bjargaði barni sem var eitt á ferð í samfellunni: Myndband

$
0
0

Þessi kona er hetja! Ótrúlegt myndband sýnir björgun ungs barns, sennilega tveggja – þriggja ára, sem var eitt á ferð í ísköldu veðri Milwaukee. Irena Ivac var að aka strætisvagni þegar hún sá barnið hlaupandi. Skipti engum sköpum, hún stöðvaði vagninn og hljóp út og tók barnið inn í hlýjuna. Yndislegt myndband…

Auglýsing

Mikilvæg skilaboð frá þeim sem þjáist af vefjagigt og stöðugum verkjum

$
0
0

Krónískir verkir eru ekkert til að grínast með og margir þjást á degi hverjum. Stöðugir verkir og krónísk veikindi eru oft ósýnileg. Oft eru engir plástrar, rispur eða marblettir til að sýna og þeir sem þjást af krónískum verkjum virka „venjulegir” – stundum eru þeir aðeins viðkvæmari eða daprari en aðrir.

Auglýsing

Ég hef þjáðst af stöðugum höfuðverkjum í fjögur og hálft ár og krónískum verkjum í mjöðm í tvö og hálft ár.

Margir héldu að ég væri þunglynd, áhugalaus eða reið þegar ég var einfaldlega að deyja úr verkjum. Margir dagar komu þar sem ég komst ekki fram úr rúminu.

Ég missti vinnuna vegna verkja. Ég hætti við að hitta fólk og hunsaði vini mína.

Mér fannst ég misskilin og ein. Ég var í þjáningu. Ég vissi að svarið væri þarna einhversstaðar og að lokum gat ég læknað mig sjálf.

Samt sem áður langaði mig að öskra hreint á fólk allt sem verkjasjúklingar þurfa að ganga í gegnum.

Auglýsing

Hér eru nokkur atriði:

  1. Bara af því að þú sérð það ekki á mér, þýðir ekki að ég finni ekki til
  2. Þetta er ekki „bara í hausnum á mér”
  3. Þetta er ekki „bara” flensa. Þetta hverfur ekkert á einni viku
  4. Í guðanna bænum, ekki segja við mig: „Reyndu bara að hugsa um eitthvað annað.” Að vera með stöðuga verki er ekki eitthvað sem ég get bara hætt að hugsa um
  5. Knús getur gert kraftaverk. Líka falleg skilaboð. Ég þarf að vita að þú sért til staðar fyrir mig
  6. Takk fyrir að deila með mér „galdrameðferðinni” sem þú fannst á netinu. Treystu mér, ég hef heyrt um hana og ef hún hentaði er ég búin að prófa hana
  7. Ég reyni af öllum mætti að lifa eðlilegu lífi
  8. Ég reyni mitt allra besta að hætta ekki við plön og myndi aldrei gera það ef ég hefði eitthvert val
  9. Sumir dagar eru betri, sumir verri. Suma daga líður mér næstum eðlilega, suma daga kemst ég ekki fram úr rúminu
  10. Ég vil vita allt um líf þitt og drauma. Ég vil þú sért heilbrigð/ur og ánægð/ur
  11. Mínir krónísku verkir eru ekki eins og allra annarra. Allir sjúkdómar og verkir hafa sína einstöku birtingarmynd. Reynsla okkar kann að vera svipuð en við erum aldrei alveg eins.
  12. Ekki biðja mig að fá mér í glas og „hressa mig við.” Auðvitað vil ég ekkert frekar en að hressa mig við og það mikið. Að fá mér í glas er samt það síðasta sem mér dettur í hug
  13. Ef ég lít út fyrir að vera þunglynd eða mér leiðist segir það bara eitt: Ég er að þjást af verkjum og er að reyna allt til að líta út fyrir að vera glöð og eðlileg
  14. Ég þarf mikinn svefn. Svefn getur samt verið erfiður þegar maður er svona verkjaður og ég er oft bara þreyttari þegar ég vakna
  15. Þó ég þjáist af verkum þýðir það ekki að ég kunni ekki að lifa með þeim eða að meðhöndla þá
  16. Stundum líður mér eins og ég sé í fangelsi, sé að lifa lífi einhvers annars
  17. Ég hef enn markmið, áhugamál og drauma
  18. Ég vil þú gleymir mér ekki. Ég vil þú gefist ekki upp á mér
  19. Ég hef ekki gefist upp á að finna lausn. Innst inni veit ég að það er (eða mun vera) svar einhversstaðar þarna úti
Auglýsing

Svona á að hita upp fyrir útihlaup á veturnar: Myndband

$
0
0

Ert þú að stunda útihlaup? Afar mikilvægt er að hita vel upp áður en haldið er af stað, sérstaklega ef kalt er í veðri. Í meðfylgjandi myndbandi má sjá gagnleg ráð til að halda meiðslum í lágmarki!

Auglýsing

Beinagrindur í skáp rapparans Drake: Myndband

$
0
0

Drake – listamaðurinn sem heitir í raun Aubrey Graham – hefur tekist ágætlega að halda nafni sínu hreinu að undanförnu, þrátt fyrir þann þráláta orðróm að hann sé í raun barnaníðingur. R. Kelly hefur verið mikið í fréttum að undanförnu vegna barnaníðs, og greinilegt er að fólk hefur enga þolinmæði gagnvart þessum viðbjóði lengur.

Auglýsing

Drake hefur verið orðaður við mörg hneykslismál sem honum hefur tekist að fela að mörgu leyti. Eins og áður sagði er óþol fólks ekkert gagnvart barnaníði, þrátt fyrir að í Hollywood hafi slíkt átt sér stað í gegnum tíðina, eins og Sykur hefur áður greint frá.

Auglýsing

Ef krafsað er í yfirborðið á Drake og hans fortíð, kemur ýmislegt í ljós…

 

Hárgreiðslur og klippingar sem verða í tísku árið 2019: Myndband

$
0
0

Hefur þú í hyggju að skipta um stíl á þessu ári? Árið 2019 verður ýmislegt spennandi í tísku, stílar sem þú myndir aldrei halda að myndu eiga endurkomu…en, jú krullur og styttri klippingar eru á leiðinni! Hér er það sem sérfræðingar segja að verði í tísku á árinu:

Auglýsing

 

Furðulegustu hlutir sem stjörnurnar hafa játað varðandi hjónaböndin sín: Myndband

$
0
0

Hollywoodhjónabönd eru alls konar. Á meðan sum eru lostafull eru önnur ekkert nema drama. Og önnur….tja, sum eru bara einfaldlega skrýtin. Hér er samantekt á því furðulega sem stjörnurnar hafa játað varðandi hjónaböndin sín. Aðvörun: Þetta er mjög, MJÖG skrýtið…

 

Auglýsing

 

Lífvörður Meghan Markle hættir störfum í nálægri framtíð

$
0
0

Kvenkyns lífvörður sem hefur vaktað hjónakornin Meghan og Harry mun hætta störfum fljótlega. Hún hefur oftsinnis sést við hlið konunglega parsins en The Sunday Times segir að hún ætli að hætta á næstunni.

Auglýsing

lifv3

Fréttirnar hafa komið illa við Meghan sem hefur fælt burtu afar hæft fólk að undanförnu. Sérstök aðstoðarkona hennar, Melissa Toubati, flúði Kensingtonhöll eftir aðeins sex mánuði. Einkaritarinn hennar, Samantha Cohen, er líka á förum síðar á þessu ári en hún hefur unnið fyrir konungsfjölskylduna í 17 ár.

Auglýsing

lifv

Heimildarmaður segir um lífvörðinn, sem ekki hefur verið nefnd á nafn, að kollegar hennar lýsi henni sem „frábærri“ og hún er afar mikils metin: „Ólíkt einhverjum sem hefur alist upp í sviðsljósinu og er vanur vernd allan sólarhringinn, getur þetta verið mikið álag. Þrátt fyrir að Meghan hafi verið fræg leikkona, gat hún farið allra sinna ferða. Núna er það ekki hægt, það eru lífverðir allsstaðar og það er afar heftandi fyrir konu eins og hana.“

Auglýsing

Nú er Scotland Yard að leita að eftirmanni lífvarðarins.

Viewing all 6511 articles
Browse latest View live